Almennar fréttir
Öryggismiðstöðin og Nýi Landspítalinn í samstarf um sjúkrakallkerfi
Frá undirritun samnings í starfsstöðvum NLSH
Öryggismiðstöðin hefur undirritað samning við Nýja Landspítalann um uppsetningu og þjónustu sjúkrakallkerfa.
Samningurinn kemur í kjölfar útboðs sem Öryggismiðstöðin vann í samstarfi við belgíska tæknifyrirtækið Televic, sem sérhæfir sig í lausnum fyrir heilbrigðisstofnanir og er leiðandi á því sviði í Evrópu.
Verkefnið felur í sér afhendingu, uppsetningu og innleiðingu sjúkrakallkerfa ásamt þjálfun starfsfólks og þjónustu við kerfin. Uppsetning fer fram í áföngum, fyrst á Grensásdeild og síðar m.a. í nýjum meðferðarkjarna Landspítala.
Samningurinn styrkir enn frekar stöðu Öryggismiðstöðvarinnar á sviði velferðartækni. Sérfræðingar og tæknifólk fyrirtækisins hafa þegar hlotið sérhæfða þjálfun á kerfin til að tryggja faglega uppsetningu og þjónustu.
Við erum mjög stolt af því að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni. Um er að ræða nýjustu kynslóð sjúkrakallkerfa sem býður upp á spennandi möguleika til framtíðar, bæði í umönnun sjúklinga og starfsumhverfi heilbrigðisstarfsfólks. Kerfið býður uppá mikla möguleika, er mjög skalanlegt og hentar þannig búsetukjörnum, hjúkrunarheimilum og hátæknisjúkrahúsum. Velferðartækni er sífellt mikilvægari þáttur í starfsemi Öryggismiðstöðvarinnar sem við leggjum mikla áherslu á að efla og þróa.“ segir Edda Rut Björnsdóttir, forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar.
Frá undrritun samnings
Við undirritun samningsins. Frá vinstri: Indriði Waage, Hannes Þór Bjarnason, Ingólfur Þórisson og Gunnar Svavarsson framkvæmdastjóri NLSH, Edda Rut Björnsdóttir forstjóri Öryggismiðstöðvarinnar, Kristinn Loftur Einarsson, Þorsteinn Ólafsson, Aníta Jóhannesdóttir og Þengill Ólafsson frá Öryggismiðstöð Íslands.