Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Almennar fréttir

Sverrir í fram­kvæmda­stjórn Öryggis­miðstöðvarinnar

Sverrir Ingi Ólafsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri öryggislausna hjá Öryggismiðstöðinni. Hann tekur við starfinu af Auði Lilju Davíðsdóttur sem lætur af störfum eftir 22 ár hjá fyrirtækinu.

Í fréttatilkynningu þar sem greint er frá þessu segir að Sverrir Ingi hafi gegnt margvíslegum störfum hjá Öryggismiðstöðinni frá því að hann hóf störf í fyrirtækinu árið 2013. Nú síðast sem deildarstjóri sölu öryggislausna.

Sverrir er viðskiptafræðingur að mennt og leggur stund á MBA nám við Háskóla Íslands.

Sverrir Ingi tekur við starfinu um miðjan mars. Auður Lilja mun áfram styðja við starfsemi fyrirtækisins á næstu mánuðum, sinna markaðsmálum og sérverkefnum.

Það er mér mikill heiður að taka við þessu nýja hlutverki hjá Öryggismiðstöðinni. Ég hlakka til að halda áfram að starfa með öflugu teymi fyrirtækisins og leggja mitt af mörkum til að efla starfsemina enn frekar. Markmiðið er að byggja áfram á sterkum grunni, styrkja árangur okkar og styðja við áframhaldandi vöxt, segir Sverrir Ingi Ólafsson.

Við þökkum Auði Lilju kærlega fyrir framlag hennar til Öryggismiðstöðvarinnar síðustu 22 árin. Auður Lilja hefur komið víða við hjá félaginu, þar af síðustu 10 árin í framkvæmdastjórn, þar sem hún átti stóran þátt í að byggja upp það leiðandi félag sem Öryggismiðstöðin er í dag. Á sama bjóðum við Sverri Inga velkominn til leiks í þetta mikilvæga hlutverk, en hann er metnaðarfullur og öflugur einstaklingur sem þekkir starfsemina og þarfir viðskiptavini okkar til hlítar, segir Benedikt Ólafsson stjórnarformaður Öryggismiðstöðvarinnar.