Byltingarkennd snúningstækni Tidewave dýnunnar dregur úr hættu á þrýstingssárum og hjálpar notanda að minnka álag á þrýstingssár ef þau eru nú þegar til staðar. Með þægilegri og hagkvæmri hönnun sveigist dýnan að hliðum sjúklingsins/notanda. Þetta kemur í veg fyrir að sjúklingar falli úr rúminu og dreifir líkamsþyngdinni yfir stærra svæði og jafnar þrýsting á þeim svæðum sem hvað viðkvæmust eru fyrir sárum. Notendur finna fyrir öryggi og þægindum í svokölluðu Tidewave „faðmlagi“. Með þessari tækni er hægt að stuðla að bata einstaklinga með sár, bæta lífsgæði notanda og létta umönnun. Dýnan er þannig hönnuð að hún „faðmar“ eða vefur sig í kringum notandann, sem bætir gæði umönnunar og léttir undir með heilbrigðisstarfsfólki.
Í Tidewave dýnunni hreyfast sjúklingurinn og dýnan samstillt í stöðugri og rólegri snúninghreyfingu. Dýnan dreifir þrýstingnum sem veldur þrýstingssárum með mjúkri, sjálfvirkri hreyfingu. Notendur hallast til hliðanna í stöðugum lotum sem vara frá 20 til 60 mínútur.
Notandi er örugglega staðsettur í „faðmlaginu“, sem hreyfist með hægasta hraða sem til er á markaðnum.
✅ Kemur í veg fyrir stöðugan þrýsting á sama stað.
✅ Fyrirbyggir og meðhöndlar þrýstingssár, jafnvel í flokki 4 .
✅ Hreyfingin er svo hæg að þú tekur ekki eftir henni – veitir hámarks þægindi og betri svefn.
Tidewave hefur sveigða lögun, The Tidewave Curve™️. Líkt og faðmlag eykur hún öryggi við snúning og dregur úr þrýstingi á líkamann. Dýnan umvefur sjúklinginn og hálfpartinn ruggar honum það rólega að hann finnur ekki fyrir hreyfingu.
Tidewave dýnan samanstendur af þremur lögum með mismunandi svampi. Það er gert til að tryggja hámarks þrýstingslétti og þægindi fyrir sjúklinginn.
Með blöndu af sérhannaðri froðudýnu og einstöku snúningskerfi býður dýnan upp á:
✅ Hæsta öryggisstig fyrir notanda og klíníska virkni.
✅ Umlykur notandann og veitir framúrskarandi þrýstingsdreifingu og þægindi.
✅ Aðlöguð að þyngdarflokki sjúklingsins.
✅ Minnkar hættu á falli með traustum kanti á báðum langhliðum.
✅ Sérsniðin hönnun sem passar bæði við hreyfingu snúningsdýnunnar og hvaða rúm sem er.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um sáravarnadýnur.
Eða hringdu í síma
570 2400