Öryggismiðstöðin býður upp á fjölbreytt úrval hjólastóla sem mæta ólíkum þörfum notenda, allt frá handknúnum lausnum frá Meyra Group og Netti Comfort hægindahjólastólum frá Alu-Rehab til sérsniðinna rafknúinna hjólastóla. Lausnirnar eru aðlagaðar hverjum notanda og eru ýmsar í samningi við Sjúkratryggingar Íslands, auk þess sem veitt er heildræn ráðgjöf um setstöðu, stýribúnað og flutning í bifreið.
Við bjóðum upp á mismunandi tengundir handknúinna hjólastóla frá birgjanum, Meyra group sem hefur verið að þróa hjólastóla í yfir 30 ár. Við erum með í samningi við Sjúkratryggingar Íslands bæði krossramma og fastramma hjólastóla sem hentar breiðum hóp notenda. Hægt er að aðlaga hjólastólana og boðið er upp á úrval aukahluta til að koma til móts við aðstæður notenda hverju sinni.
Við bjóðum upp á breitt úrval af Netti Comfort hægindahjólastólum frá norska fyrirtækinu Alu-Rehab sem hefur framleitt og þróað hjólastóla frá árinu 1989 í samvinnu við notendur og setráðgjafa.
Baldertech er rafknúinn hjólastóll sem er hægt að sérsníða að þínum þörfum. Við veitum heildræna og einstaklingsmiðaða ráðgjöf er varða setstöðu, stýribúnaðar og við að ferðast með hjólastólinn í bifreið.
Öryggismiðstöðin býður í samstarfi við Positioning Products stuðningsbelti sem voru upprunalega þróuð fyrir fólk sem stundar vatnaíþróttir.