Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Rafrænir lyfjaskammtarar

Karie Duo

Öryggismiðstöðin býður upp á fjölbreyttar lausnir sem styðja við aukið öryggi, sjálfstæði og bætt lífsgæði með aðstoð nútímalegrar tækni. Meðal þeirra eru rafrænir lyfjaskammtarar sem hafa það hlutverk að tryggja að lyf séu tekin á réttum tíma og í réttum skömmtum. Slíkar lausnir bæta meðferðarheldni, draga úr líkum á mistökum í lyfjatöku og geta á sama tíma minnkað þjónustuþörf, sem eykur sjálfstæði notenda og léttir álagi af aðstandendum og starfsfólki.

Panta þjónusturáðgjöf
Heilbrigðistækni

Karie Duo lyfjaskammtari

Karie Duo er stílhreinn, léttur og einstaklega notendavænn lyfjaskammtari sem er hannaður til að einfalda daglega lyfjatöku. Tækið er með skýran skjá og einfaldar leiðbeiningar sem gera notkunina aðgengilega fyrir notendur á öllum aldri. Áfylling er fljótleg, einföld og tekur aðeins nokkrar sekúndur, þar sem notandi fær skýrar leiðbeiningar á skjá við hvert skref.

Karie Duo er hannaður til að einfalda lyfjagjöf og auka öryggi í daglegu lífi. Tækið stuðlar að bættri meðferðarheldni, styður við sjálfstæða búsetu og dregur úr þörf fyrir regluleg innlit. Með einfaldri áfyllingu, skýrum leiðbeiningum og sjálfvirkum áminningum hjálpar lyfjaskammtarinn til við að hámarka nýtingu á tíma starfsfólks og tryggja áreiðanlega lyfjagjöf.

Rafrænir lyfjaskammtarar eru öflug lausn fyrir einstaklinga, aðstandendur og þjónustuaðila sem vilja auka öryggi, bæta skipulag og styðja við sjálfstæða búsetu með aðstoð nútímalegrar heilbrigðistækni.

Rafrænir lyfjaskammtarar henta vel fyrir einstaklinga sem taka reglulega lyf og vilja aukið öryggi í daglegu lífi, sem og fyrir þjónustuaðila sem vilja tryggja áreiðanlega lyfjagjöf með skilvirkari hætti. Með sjálfvirkum áminningum, öruggri skömmtun og möguleika á eftirliti er hægt að tryggja að rétt lyf séu tekin á réttum tíma, auk þess sem hægt er að bregðast fljótt við ef frávik verða.

Heilbrigðistæknilausnir sem Öryggismiðstöðin býður eru margreyndar á Norðurlöndum og hafa rannsóknir sýnt fram á verulegan ávinning bæði fyrir notendur og umönnunaraðila. Með notkun rafrænna lyfjaskammtara má bæta skipulag lyfjagjafa, auka öryggi og nýta betur þann tíma sem fer í umönnun og eftirlit.

Diljá Guðmundardóttir

Sérfræðingur í heilbrigðislausnum / sjúkraþjálfari

Panta ráðgjöf

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um heilbrigðistækni.