Velferðartækni
Við brúum bilið að bættum lífsgæðum
Við í Öryggismiðstöðinni hjálpum þér að bæta lífsgæði með því veita faglega einstaklingsmiðaða þjónustu og hlusta á þarfir þínar. Við bjóðum vandaðar og margreyndar lausnir sem allar hafa það markmið að bæta lífsgæði og veita tækifæri til aukinnar þátttöku í samfélaginu.

Öryggishnappur
Ekkert er dýrmætara en öryggi okkar nánustu. Öryggismiðstöðin býður öryggishnappa sem virka innan veggja heimilis eftir þörfum hvers og eins. Ef alvarleg atvik eiga sér stað virkjar hnappurinn talsamband við öryggisverði sem bregðast skjótt við.
- Aukið öryggi heima fyrir
- Val um armband eða hálsmen
- Meðfærilegir og einfaldir í notkun
- Niðurgreiðslur frá Sjúkratryggingum Íslands

Aðgengislausnir
Gott aðgengi er réttur sem allir eiga að njóta. Við bjóðum fjölbreytt úrval af hágæðarömpum og brautum úr áli, sem eru léttir, einfaldir í notkun og með mikla burðargetu.
- Rampar eða brautir fyrir hjólastóla
- Rampar fyrir bifreiðar
- Kerfisrampa fyrir húsnæði
- Þröskuldarampar fyrir húsnæði

Bílabreytingar
Við bjóðum upp á heildræna þjónustu í bílabreytingum fyrir alla aldurshópa. Ráðgjöfin er einstaklingsbundin og framkvæmd af fagaðilum með heilbrigðismenntun og umhyggju að leiðarljósi.
- Við akstur
- Að setjast
- Lyftibúnaður
- Hjólastólalyftur og rampar
- Öryggisbúnaður

Fólkslyftarar
Við bjóðum fjölbreytt úrval vandaðra fólkslyftara sem bæta lífsgæði og tryggja vinnuvernd. Allt frá nettum ferðalyftara yfir í sundlaugalyftu, þú finnur lausnina hjá okkur
- Seglalyftarar
- Flutningssegl
- Standlyftarar
- Loftlyftukerfi
- Sundlaugalyfta

Tjáskiptalausnir og umhverfisstjórnun
Tjáskiptabúnaður er ætlað að auka sjálfstæði, efla samskipta- og lestrahæfileika einstaklinga. Tjáskiptatæknin gefur einstaklingum tækifæri til að lifa innihaldsríkara lífi og auka þátttöku sína í samfélaginu.
- Tjáskiptabúnaður
- Tjáskiptabúnaður með augnstýringu
- Hugbúnaður til tjáskipta
- Umhverfisstjórnun
- Armar og festingar

Hægindahjólastólar
Við bjóðum upp á breitt úrval af Netti Comfort hægindahjólastólum frá norska fyrirtækinu Alu-Rehab sem hefur framleitt og þróað hjólastóla frá árinu 1989 í samvinnu við notendur og setráðgjafa.
- Aðskildar stillingar fyrir tilt og bakhalla
- Hæðastillanlegar og aðskildar fótafjalir
- Mikið úrval af aukahlutum
- Á samning Sjúkratrygginga Íslands

Rafknúnir hjólastólar
Baldertech er rafknúinn hjólastóll sem er hægt að sérsníða að þínum þörfum. Við veitum heildræna og einstaklingsmiðaða ráðgjöf er varða setstöðu, stýribúnaðar og við að ferðast með hjólastólinn í bifreið.
- Stílhreint útlit
- Þýður og mjúkur í akstri
- Lág sethæð og hraðvirkur
- Möguleikar á standstöðu og séraðlögun
- Eru á samning við Sjúkratryggingar Íslands

Jafnvægishjólastólar
Rafknúnir jafnvægishjólastólar er ný tegund af hjálpartækjum sem notast við Segway jafnvægistækni til að keyra á tveim hjólum.

Rafskutlur
Öryggismiðstöðin býður afar vandaðar, öruggar og þægilegar rafskutlur sem henta vel fyrir íslenskar aðstæður.

Heilbrigðislausnir
Bjóðum upp á öflugar heilbrigðislausnir sniðnar að þörfum heilbrigðisstarfsfólks sem eru ætlað að gera starf þeirra auðveldara, öruggara og skilvirkara

Heilbrigðistækni
Heilbrigðistæknilausnir Öryggismiðstöðvarinnar nýtast frábærlega til að bæta líf einstaklinga með breytilegar þarfir.
- Rafrænir lyfjaskammtarar
- Tenging við stafræna heilsugátt
- Bætt öryggi og lífsgæði skjólstæðinga
- Aukið samstarf og betri þjónusta heilbrigðisstofnana

Sjúkrakallkerfi
Sjúkrakallkerfi bæta þjónustu og stuðla að auknu öryggi íbúa og starfsfólks heilbrigðisstofnana, hjúkrunarheimila og þjónustukjarna. Hægt er að fá stakan búnað eða heildstæðara kerfi allt eftir þörfum og aðstæðum.
- Rápvöktun
- Stafræn innlit og yfirseta
- Öryggisbúnaður
- Fallvarnir og falleftirlit
- Samskiptabúnaður

Hjálpartækjaverkstæði
Öryggismiðstöðin rekur öflugt verkstæði sem sinnir hvers kyns viðgerðum á hjálpartækjum sem seld eru af Öryggismiðstöðinni. Við erum einnig með samning við Sjúkratryggingar Íslands um viðgerðarþjónustu.
- Viðgerðarþjónusta á hjálpartækjum frá Öryggismiðstöðinni
- Samstarfsaðili í bílabreytingum er Bílasport
- Almennar viðgerðir unnar innan tveggja vinnudaga ef varahlutir eru til staðar
- Neyðarþjónusta utan opnunartíma verkstæðis