Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Öryggiskerfi

Huppa

Ísbúðin Huppa

Ísbúðir Huppu opnuðu fyrstu ísbúðina á Selfossi árið 2013. Ísbúðunum fjölgaði hratt, enda ísinn bæði vinsæll og eftirsóttur. Í dag eru verslanir Huppu sjö talsins á höfuðborgarsvæðinu, Borgarnesi, Hafnarfirði, Garðabæ og heimabæ Huppu á Selfossi. Í verslunum Huppu er lögð sérstök áhersla á góðan ís, bragðarefi, góða stemmingu og framúrskarandi þjónustu.

Við hjá Öryggismiðstöðinni viljum líka veita framúrskarandi þjónustu með okkar lausnum og gætum öryggis í öllum verslunum Huppu með Snjallöryggi, öryggiskerfi sem vaktar fyrirtæki, heimili og sumarhús.

Öryggiskerfi sem hægt er að tengja við reykskynjara, hreyfiskynjara, hurðarofa, gasnema og vatnsleka skynjara, snjalllása og myndavélar og hægt er að stýra með appi í síma eða spjaldtölvu. Þar er hægt að stofna notendur, sjá atvikaskrá, virkja kerfi, afvirkja það og jafnvel sjá hitastig í vörðum rýmum ásamt ýmsum öðrum snjöllum valmöguleikum.

"Okkar samstarf við Öryggismiðstöðina hefur verið mjög gott, þau eru snögg að bregðast við breyttum aðstæðum og aðlaga sig með nýjungum. Snjallöryggið er frábært að mínu mati og ég mæli hiklaust með því.“ segir Gunnar Már Þráinsson, framkvæmdastjóri Huppu.

Myndbönd

Aron Björn Kristinsson

Öryggisráðgjafi Sala og ráðgjöf
Kristófer Lúðvíksson

Kristófer Lúðvíksson

Öryggisráðgjafi Sala og ráðgjöf

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar