Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Öryggiskerfi

Orkan

Verslanir Orkunnar vel varðar

Orkan rekur fjölda verslana, meðal annars undir merkjum Orkunnar, Extra og 10-11.

Orkan lítur á mannauð sinn sem mikilvægustu auðlind fyrirtæksins og leggur því sérstaka áherslu á að tryggja öryggis starfsmanna sinna við störf sín. Það gera þau með reglulegri þjálfun þar sem starfsmönnum eru kennd rétt viðbrögð við ógnandi hegðun, hvernig þau geti varist henni og rétt viðbrögð. Einnig með uppsetningu á öryggisbúnaði eins og neyðarhnappi sem allar verslanir þeirra eru útbúnar með. Hann er hægt að virkja með léttri snertingu telji starfsmaður að öryggi hans sé ógnað. Samstundis berast neyðarboð til stjórnstöðvar Öryggismiðstöðvarinnar, öryggisvörður sendur á staðinn og lögreglu gert viðvart tafarlaust. Oftar en ekki hafa öryggisverðir og lögregla komið í veg fyrir alvarlegar árásir með skjótum viðbrögðum við erfiðar aðstæður oft á tíðum.

Öryggismiðstöðin er stolt af því að vinna með Orkunni að auknu öryggi starfsmanna þeirra.

Við erum virkilega ánægð með samstarfið. Öryggismiðstöðin spilar lykilhlutverk í að skapa öruggt umhverfi fyrir okkar starfsmenn, en það er okkur mjög mikilvægt að starfsmenni upplifi sig örugga í starfi sérstaklega þar sem við erum með verslanir opnar allan sólahringinn. Helgi Hansson, öryggisstjóri Orkunnar.

Þengill Ólafsson

Viðskiptastjóri Sala og ráðgjöf

Arnór Freyr Guðmundsson

Viðskiptastjóri Sala og ráðgjöf

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um þessar lausnir

Eða hringdu í síma

570 2400