Seglalyftari
Seglalyftarar
Við bjóðum fjölbreytt úrval vandaðra seglalyftara sem henta einstaklingum jafnt sem heilbrigðisstofnunum. Vinsælasti seglalyftarinn er ferðalyftarinn Molift Smart 150 (kg) sem tekur lítið pláss og auðvelt að ferðast með. Við bjóðum einnig öflugari seglalyftara sem geta tekið allt að 300 kg. Einstök hugsjón og hönnun liggur að baki Molift seglalyfturum sem miðar að því að hámarka notagildi hans til hins ýtrasta. Hafðu samband til að fá ráðgjöf um val á seglalyftara.

Molift Smart 150
Molift Smart 150 er léttur segllyftari sem hægt er að leggja saman og tekur lítið geymslupláss. Seglhengið er fjögurra punkta hengi sem þýðir að það er stöðugra við flutning. Hægt er að fá ferðapoka á hjólum fyrir flutning á lyftaranum í lengri ferðalögum.
Með seglalyfturum er hægt að fá fjölbreytt úrval af flutningsseglum sem henta við mismunandi aðstæður. Öll flutningssegl eru til í mismunandi stærðum og útfærslum eftir færni og getu einstaklings.
Molift Mover og Partner
Að auki bjóðum við upp á hreyfanlega seglalyftara sem taka allt að 300kg. Frekari upplýsingar um eftirfarandi lyftara má finna í PDF yfirlitsskjali: Fólkslyftarar frá Etac Molift 2023
- Molift Mover 180 (kg)
- Molift Mover 205 (kg)
- Molift Mover 300 (kg)
- Molift Partner 255 (kg)
Fræðsluefni og bæklingar:

Aníta Jóhannesardóttir
Sérfræðingur / hjúkrunarfræðingur Velferð og ráðgjöf
Panta ráðgjöf
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um fólkslyftara.
Eða hringdu í síma
570 2400