Fara á efnissvæði
Mínar síður Leita

 Leita
EN
Mínar síður 0 Karfa

Hjálpartækjaverkstæði

Almennt um viðgerðarþjónustu hjálpartækja

Öryggismiðstöðin rekur öflugt verkstæði sem sinnir hvers kyns viðgerðum á hjálpartækjum sem seld eru af Öryggismiðstöðinni. Fyrir ísetningar á hjálpartækjum í bifreiðar og viðgerðarþjónustu á slíkum tækjum er fyrirtækið í samstarfi við aðra þjónustuaðila. Við erum einnig með samning við Sjúkratryggingar Íslands um viðgerðarþjónustu.

Panta þjónusturáðgjöf
HJÁLPARTÆKJAVERKSTÆÐI

Samningur við Sjúkratryggingar Íslands

Ertu með hjálpartæki í láni frá Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) sem þarfnast viðgerðar? Öryggismiðstöðin er með samning við SÍ um viðgerðir hjálpartækja og rekur fullbúið verkstæði. Við tökum við hjálpartækjum sem seld eru af Öryggismiðstöðinni á verkstæði okkar að Askalind 2a í Kópavogi.

Fyrir stærri hjálpartæki er hægt að hringja í síma 570-2400 og óska eftir að tækið verði sótt.

Samstarf við Bílasport

Samstarfsaðili um ísetningu hjálpartækja í bifreiðar og viðgerðarþjónustu við bifreiðalausnir er Bílasport ehf. Bílasport er staðsett við Bryggjuvör 3, 200 Kópavogi.

Tengiliðaupplýsingar hjá Bílasport:

Sækjum, sendum eða vinnum á staðnum

Okkar þjónusta felur í sér að við sækjum og sendum í og úr viðgerð þau tæki sem notandi getur ekki komið sjálfur með í hefðbundnum fólksbíl. Fyrir þá aðila mælum við með að senda netpóst til okkar á velferd@oryggi.is eða hringja í síma 570-2400.

Ef póstur er sendur er gott að taka fram:

  • Nafn
  • Kennitala
  • Símanúmer
  • Hvaða tæki er um að ræða
  • Staðsetningu tækis
  • Hvort tækið sé eign Sjúkratrygginga Íslands eða ekki
  • Eðli bilunar

Við höfum svo samband og finnum í samráði hentuga tímasetningu til að sækja búnaðinn. Ef ekki er raunhæft að flytja tæki af heimili, svo sem sjúkrarúm, bjóðum við viðgerð í heimahúsi.

Ef óskað er eftir fleiri tækjum til viðgerðar er hægt að fylla út þar til gert eyðublað sem finna má hérna fyrir neðanog senda síðan útfyllt á velferd@oryggi.is

Mat á viðgerðarþörf

Þegar vafi er uppi um gagnsemi viðgerðar sökum aldurs, slits eða alvarleika bilunar hefur verkstæði okkar samband við hjálpartækjamiðstöð SÍ sem metur hvort endurnýja eigi hjálpartæki eða ekki.

Neyðarþjónusta

Við bjóðum upp á neyðarþjónustu og öryggisaðstoð án tækniþjónustu vegna bilana á hjálpartækjum frá kl. 16:00 - 24:00 virka daga og frá kl. 09:00 - 24:00 um helgar.

Ýmsar aðstæður geta komið upp sem kalla á öryggisaðstoð til notenda, til dæmis að:

  • Sjúkrarúm sé fast í efstu stöðu
  • Veggföst lyfta bili
  • Notandi sé fastur í segli lyftara

Sími neyðarþjónustu er 515-0120.

Verkstæði Öryggismiðstöðvarinnar í Askalind 2a er opið frá kl. 8-16 alla virka daga.

Eyðublað viðgerðarþjónustu

Ólafía Ragnarsdóttir

Ráðgjöf og sala / sjúkraliði Velferð og ráðgjöf

Þjónustuver

Þjónustuver

Panta ráðgjöf

Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar um hjálpartækjaverkstæðið.