Sáravarna- og loftdýnur
Heilbrigðislausnir
Þrýstingssár er ríkjandi heilbrigðisvandamál og geta dregið úr lífsgæðum fólks og aukið álag þeirra sem sinna umönnun. Með því að fjárfesta í forvörnum á móti kostnaði við að meðhöndla þrýstingssár má ná fram sparnaði. Við bjóðum upp á úrval af sáravarnadýnum og sérhæfðum loftdýnum frá traustum framleiðendum sem henta bæði inn á heilbrigðisstofnanir sem og inn á heimili fólks. Allar sáravarnalausnir eiga það sameiginlegt að auka skilvirkni til að fyrirbyggja þrýstingssár, einfalt og notendavænt viðmót sem tryggir öryggi og þægindi í umönnun notenda.

Sáravarnadýnur
Við bjóðum upp á úrval af sáravarnadýnum og sérhæfðum loftdýnum frá Linet og DHG fyrir einstaklinga í mikilli sárahættu.
- Mercury Sáravarnadýna
- CliniCare 30 Sáravarnadýna
- CliniCare 10 Sáravarnadýna

Air2Care Loftdýna
Air2Care loftdýnan eykur skilvirkni inn á heilbrigðisstofnunum með notendavænum eiginleikum sem gerir öllum kleift að hámarka sáravörn skjólstæðings.
- Tveggja hólfa víkjandi þrýstingsmeðferð
- Loftskipti við 10,15,20 og 25 mínútna fresti
- 24klst sárameðferð
- CPR stuðningur

Virtuoso Loftdýnur
Virtuso línan var hönnuð með það í huga að mæta kröfuhörðustu hjúkrunarþörfum við umönnun sjúklinga í mikilli sárahættu.
- Þriggja hólfa víkjandi þrýstingsmeðferð
- Loftskipti á 7,5 mínútna fresti
- Náttúruleg hita- og rakastjórnun við húð
- 24klst sárameðferð

Precioso Loftdýna
Precioso er sérhæfð loftdýna frá Linet sem er hönnuð til að koma í stað hefðbundinnar svampdýnu til notkunnar inn á heilbrigðisstofnunum eða heimili.
- Þriggja hólfa víkjandi þrýstingsmeðferð
- Loftskipti við 7,5 mínútna fresti
- 24klst sárameðferð
- Hentar öllum stigum þrýstingssára