Fylgihlutir
Fylgihlutir fyrir sjúkra- og hjúkrunarrúm
Bjóðum upp á úrval að fylgihlutum s.s. náttborð, matarborð, hliðarborð o.fl. frá Linet. Við hvetjum ykkur til að skoða bæklinga og þær útfærslur sem eru í boði.

Fjölbreyttir fylgihlutir fyrir sjúkra- eða hjúkrunarrúm

Eleganza Classic - Náttborð með hliðarborði
Eleganza Classic náttborðin eru í stíl við sjúkrarúmin. Koma með hallanlegu og hækkanlegu hliðarborði. Eru til í ýmsum litum og útfærslum
- Borðin eru úr slitsterku efni sem auðvelt er að sótthreinsa
- Handföng eru á borðum til að auðvelda staðsetningu og koma í veg fyrir að hlutir renni af borðinu
- Skápurinn og skúffan eru opnanleg að framan og aftan
- Hægt er að setja náttborðið í bremsu með tveim hjólum

Solido 2 - Matarborð
Solido II er hækkanlegt hliðarborð í hvítu sem hægt er að halla og auðvelt að staðsetja við rúm eða stóla. Létt og þægilegt í notkun við fjölbreyttar athafnir.
- Auðvelt að hækka borðið án áreynslu
- Hægt að halla borðinu í allt að 40°
- Slitsterkir snertifletir auðvelda þrif og sótthreinsun
- Bremsur á tveimur hjólum
- Burðargeta allt að 30kg

Solido 3 - Hliðarborð
Solido 3 matarborðið er nauðsynlegur fylgihlutur sem gerir dvöl sjúklings í rúm ánægjulegri. Hefur fjölbreytta notendavæna eiginleika sem gerir allar stillingar auðveldar fyrir bæði sjúkling og umönnunaraðila
- Einfaldir stillimöguleikar
- Í boði 50 mm eða 75 mm hjól
- Ýmsir aukahlutir í boði
- Hámarksþyngd ofan á borði er 30 kg
- Fjölbreyttir litir í stíl við umhverfið
Bæklingar og fræðsluefni

Aníta Jóhannesardóttir
Sérfræðingur / hjúkrunarfræðingur Velferð og ráðgjöf